DeLonghi Magnifica Evo Espresso kaffivél | HT.is

-- Viðgerðarvél, er í góðu standi, umbúðarlaus. / B-Vara er tæki sem er útlitsgallað eða notað. Tækið er ekki til sýnis og er afgreitt út úr vöruhúsi. Tækið er yfirfarið, prófað og er með fullri ábyrgð.

Einföld og stílhrein sjálfvirk kaffivél sem malar baunir.
Stjórnborðið er skýrt með með fjóra takka til að velja þrjá mismunandi kaffidrykki eða til að flóa mjólk. Vélinn er með þrjár stillingar fyrir kaffistyrk en einnig er hægt að nota malað kaffi.
Vélinn er með 1,8l vatnstank og korkskúffu sem heldur allt að 14 bollum af kork. Baunahólf er aðgengilegt ofan á vélinni og þar er hægt að fínstilla grófleika á mölun á hjóli í baunahólfinu með 13 skrefum.