Vinsamlega lestu yfir viðskiptaskilmála okkar áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að versla við vefverslun okkar samþykkir þú þessa skilmála.
Greiðsluleiðir
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumáta:
- Visa/Mastercard
- Visa/Mastercard raðgreiðslur
- Netgíró
- SíminnPay Léttkaup
- Millifærslur
Ef upp koma greiðsluvandamál, t.d. ef greitt er með stolnu korti, þá áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntun.
Athugið að ef vara er sótt og greidd með kreditkorti verður korthafi sjálfur að sækja og framvísa skilríkjum. Greitt er á öruggri greiðslusíðu Borgunar, en til að tryggja öryggi korthafa notast Borgun við ítrustu öryggisstaðla og öll gögn eru SSL dulkóðuð. Heimilistæki fær aldrei upplýsingar um greiðslukortanúmer heldur aðeins þær upplýsingar hvort greiðsla hafi farið í gegn.
Afhending vöru
Viðskiptavinur getur valið að sækja vörur á lager Heimilistækja í Reykjavík eða að sækja í næstu verslun. Velji viðskiptavinur að sækja vöruna í vöruhús eða í eina af okkar verslunum fær hann tilkynningu þegar vara er tilbúin til afhendingar á viðeigandi afhendingarstað. Afgreiðsla og afhending pantana tekur alla jafna 1-2 virka daga, með fyrirvara um álag og að allar vörur séu til á lager. Flestar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða daginn eftir.
Velji viðskiptavinur að fá pöntun senda getur hann valið að fá pöntun senda heim að dyrum eða á næstu stöð þess flutningsaðila sem pantað er með. Flutningsaðili fer eftir eðli pöntunar, en smærri vörur eru sendar með Póstinum heim að dyrum eða á næsta pósthús/póstbox. Þá sjá bílstjórar Heimilistækja um að keyra út stærri heimilistæki á höfuðborgarsvæðinu, en Samskip sér um flutning út á land, á næstu stöð eða heim að dyrum.
Þeir valmöguleikar sem eru í boði fyrir viðskiptavin, og gjald fyrir heimsendingu, reiknast áður en gengið er frá pöntun.
Af öllum pöntunum dreift af Póstinum og Samskip gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins og Samskipa um afhendingu vörunnar. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Póstsins og vefsíðu Samskipa.
Sé vara uppseld eða önnur atriði tefja afgreiðslu pöntunar er haft samband við viðskiptavin eins fljótt og hægt er, með upplýsingum um hvenær pöntun verður afgreidd og með hvaða hætti.
Skilaréttur
365 daga skilaréttur af vörum ef þær eru í óopnuðum umbúðum gegn framvísun kaupnótu. Skilaréttur þessi gildir ekki af sérpöntunum eða notuðum vörum.
14 daga skilaréttur af vörum, þó búið sé að opna umbúðir og prófa, gegn framvísun kaupnótu. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar að meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta eiginleika og virkni. Enn fremur þurfa allir fylgihlutir og handbækur að fylgja með vöru.
Í boði er endurgreiðsla eða inneignarnóta.
Vörum með skiptimiða er hægt að skila og fá inneignarnótu ef þær eru í óopnuðum umbúðum, svo fremi að varan sé enn í sölu og þá gildir það verð sem er á þeim degi sem skilað er.
Viðskiptavinur ber beinan kostnað af því að skila vöru og ber ábyrgð á að koma vörunni til Heimilistækja.
Persónuupplýsingar
Öll söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga þinna eru unnin í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Til að við getum uppfyllt þá þjónustu sem er í boði þegar verslað er í vefversluninni þá þurfum við að fá upplýsingar um nafn þitt, heimilisfang, netfang og símanúmer. Við vistum engar greiðsluupplýsingar aðrar en hvaða greiðslumiðil var notast við þegar greitt var fyrir pöntunina.
Við deilum ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema til að uppfylla þá þjónustu sem þú hefur valið, t.d. til að uppfylla óskir um heimsendingarþjónustu.
Smelltu hér til að sjá frekari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga.
Ábyrgðarskilmálar
Tilkynningar um galla eða skemmdir skal senda á sala@ht.is. Heimilistæki áskilur sér þann rétt að meta hvert tilfelli fyrir sig og ber að bjóða viðgerð, nýja vöru, afslátt eða endurgreiðslu teljist vara gölluð.
Ábyrgðartími á búnaði er almennt 2 ár þegar um neytendakaup er að ræða í samræmi við reglur neytendakaupalaga nr. 48/2003, en vörur sem ætlaður er umtalsvert lengri endingartími en 5 ár geta verið með allt að 5 ára ábyrgðartíma á framleiðslugöllum. Þegar búnaður er keyptur í atvinnuskyni af lögaðila er ábyrgðartími 1 ár. Ábyrgð fellur niður ef bilun má rekja til illrar eða rangrar meðferðar. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á búnaði eða notkunar á rekstrarvöru.
Viðgerðir vegna ábyrgða skulu fara fram á verkstæði Heimilistækja eða öðru verkstæði sem Heimilistæki samþykkja. Flutningskostnaður til og frá verkstæði fellur ekki undir ábyrgð. Ábyrgð á búnaði fellur niður ef viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en viðurkenndu verkstæði Heimilistækja, búnaðurinn hefur þolað ranga meðferð, misnotkun eða orðið fyrir hnjaski eða átt hefur verið við búnaðinn þannig að skemmd hefur hlotist af.
Sölureikningur telst ábyrgðarskírteini og skal framvísa honum til staðfestingar á ábyrgð og gildir ábyrgðin frá kaupdegi.
Úrlausn vafamála
Komi upp ágreiningsmál varðandi þjónustu og skildur Heimilistækja er viðskiptavinum bent á Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa á vef Neytendastofu.
Tryggingaskilmálar
Í mörgum tilfellum býðst viðskiptavinum okkar að kaupa viðbótartryggingu með vöru. Viðbótartrygging veitir víðtækari rétt en hefðbundnir ábyrgðarskilmálar líkt og sjá má á skýringartöflunni hér fyrir neðan.
Allar upplýsingar á vefnum eru birtar með fyrirvara um breytingar og/eða villur. Einstaka myndir gætu verið af sambærilegri vöru þegar rétt mynd er ekki fáanleg frá framleiðanda.
Verð á vefnum er birt í íslenskum krónum og er virðisaukaskattur innifalinn í verði. Verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram.
Heimilistæki ehf
Kennitala: 470400-3070
Suðurlandsbraut 26
108 Reykjavík
VSK Númer: 75484
Þessi síða var uppfærð síðast 01.02.21