Ísvél 1L | Witt | HT.is

Nett ísvél frá Witt sem útbýr ísinn beint í vélinni með innbyggðri kælieiningu, þannig að ekki þarf að forfrysta skálina fyrirfram. Blandan er sett beint í vélina og þegar ísgerð er valin fara þjappan, hrærimótorinn og kæliviftan af stað samtímis. Á meðan blandan er hrærð er hún kæld jafnt þar til rétt áferð og þéttleiki næst, sem skilar mjúkum og kremkenndum ís. Vélin fylgist sjálf með gerð íssins og stöðvar ferlið þegar æskilegri áferð hefur verið náð.

Ísgerð tekur að jafnaði um 30–60 mínútur eftir uppskrift og innihaldi. Einfaldar ísuppskriftir og sorbet eru yfirleitt tilbúnar á um 30–40 mínútum en rjómakenndur ís og frosin jógúrt geta tekið allt að 50–60 mínútur.

Vélin býður upp á prógrömm fyrir ísgerð, blöndun, kælingu og jógúrt. Þegar ísinn er tilbúinn fer vélin sjálfkrafa yfir í kælingu svo innihaldið haldist kalt ef það er ekki borið fram strax. Keep Cool virknin heldur síðan ísnum köldum með reglulegum kæliköstum í allt að eina klukkustund til að viðhalda áferð og bragði.

1 lítra ískálin er laus og allir hlutar sem snerta blönduna eru hægt að losa sem auðveldar þrifin. Snertistýring og tímastillir gera notkunina einfalda og vélin sér sjálf um að kæla og hræra blönduna þar til fullkominni niðurstöðu er náð. Til að ná sem bestum árangri er mælt með að hráefnið sé vel blandað áður en það er sett í vélina, en ekki forfryst.

Stærðir

Stærð (B x H x D)

26 x 22,75 x 35,5 cm

Litur

Svartur

Rúmmál

1L

Afl

Wött

100

Almennar Upplýsingar

Strikamerki vöru

5707582036025