





+2
Vörulýsing
Endurbætt útgafa af Probaker hrærivélinni frá Wilfa.
Probaker Timer kemur með deigkrók úr ryðfríu stáli auk tímastilli sem auðveldar
fulla stjórn á bakstrinum.
Probaker Timer skilar hámarks árangri fyrir þá sem vilja engar málamiðlanir í
bakstri.
Hrærivélinn fór í gegnum fimm ára þróunarferli í samstarfi við norska
landsliðið í bakstri til að finna bestu lausnirnar og er útkoman öflug hrærivél
með einstöku hnoðkerfi og fylgihlutum, auk þess að vera hljóðlát og stöðug á
borði.
Vélinn er með innbyggðan tímastilli sem hægt er að nota sem skeiðklukku eða
niðurteljara.
Deigkrókur úr ryðfríu stáli er sterkari og endingarbetri en fyrri útgáfa auk
þess má þvo hann í uppþvottavél.
Tvöföld hnoðtækni.
Bæði deigkrókur og skálin snúast samtímis sem veitir bestu mögulegu hnoðun og
þróar gluten í deiginu á áhrifaríkan hátt. Lítið bil milli skálar og króks sem
tryggir að allt hráefnið sé hnoðað án þess að deigið klifri upp krókinn.
Nægt rými.
Stór 7 lítra skál úr ryðfríu stáli rúmar allt að 5 kg af deigi. Þú getur
auðveldlega útbúið bæði stórar og smáar uppskriftir. Það er einnig auðvelt að
bæta við hráefnum þar sem nóg pláss er á milli skálar og drifskafts.
Hraðastillingar.
Með 20 hraðastillingur hefurðu allfat fullkomna stjórn á bakstrinum og getur
valið besta hraðan fyrir uppskriftina.
10 ára ábyrgð á mótor.
Hrærivélin kemur með 10 ára ábyrgð á mótor.
Tvöfaldur þeytari.
Einstakur tvöfaldur þeyrari tryggir léttan og loftkendan rjóma, marens o.fl
Mælt er með því að lesa leiðarvísi vel fyrir rétta hraðastillingu fyrir
mismunandi hráefni.
Skvettuvörn.
Með Probaker Timer fylgir skvettuvörn sem heldur öllu hráefni ofan í skálinni.
Hrærari með sleikju.
Hrærarin með Probaker kemur með sílíkón sleikju sem hægt er að fjarlægja.
Sleikjan skefur veggi skálarinnar og blandar kökudeig og aðrar blöndur vel
saman.
Stöðug.
Probaker Timer er hönnuð með stöðuleika að leiðarljósi, vélin helst á sínum
stað jafnvel við hámarksálag t.d. við hnoðun á stórum uppskriftum.
Meðan birgðir endast fylgir Max eldhúsvog frá Wilfa seldum Pro Baker Timer hrærivélum.
Nánari tæknilýsing