Roborock sláttuvélmenni | HT.is

Roborock sláttuvélmenni – ný kynslóð snjallrar garðhirðu

Roborock hefur verið meira en áratug í að gera heimilishreingerningu áreynslulausa. Nú hefur þessi þekking, tækni og reynsla færst út fyrir stofuveggina og út í garðinn. Með tilkomu nýjustu sláttuvélmannanna, RockNeo og RockMow, markar Roborock ný tímamót í þróun snjallra garðlausna. Sláttuvélmennin eru hönnuð með framtíðarsýn að leiðarljósi: þau hugsa sjálfstætt, hreyfast af mikilli nákvæmni og skila áreiðanlegum afköstum.

Öll sláttuvélmennin búa yfir þeim eiginleikum sem Roborock er orðið þekkt fyrir: skynsamri og nákvæmri leiðsögn, hnökralausum vinnubrögðum og notendavænu snjallforriti þar sem auðvelt er að stilla sláttutíma, afmarka svæði og fylgjast með slættinum í rauntíma, jafnvel þegar enginn er heima. Þetta gerir þeim kleift að sinna bæði litlum og stórum lóðum á áreynslulausan hátt og tryggja að garðurinn haldist vel snyrtur allt árið um kring.

Þannig getur þú notað minni tíma í að hugsa um garðinn og meiri tíma í að njóta hans.

RockNeo-línan er búin snjallri kortlagningu sem gerir sláttuvélmenninu kleift að rata um garðinn án vandræða, jafnvel á þröngum svæðum niður í 0,7 m þykkt. Sláttuvélmennið notar samtvinnaða RTK- og VSLAM-staðsetningartækni sem tryggir nákvæmni, jafnvel í skugga eða undir trjátoppum. RockNeo er hagkvæm og einföld lausn fyrir minni garða, allt að 1.000 m². Sláttuvélmennið kortleggur umhverfið, skynjar hindranir með nákvæmni, klippir allt niður í 3 cm frá brúnum og ræður við allt að 45% halla.

RockMow-sláttuvélmennin, RockMow S1 og RockMow Z1, eru hönnuð fyrir stærri og flóknari lóðir. RockMow S1 er tvíhjóladrifið sláttuvélmenni, fullkomið fyrir meðalstóra garða. RockMow S1 blandar saman kraftmikilli stýringu og lipurri hreyfigetu og sinnir slætti á svæðum allt að 1.000 m². Sláttuvélmennið tekst á við 45% halla, fer í gegnum þrönga staði niður í 70 cm og nær alveg að 3 cm frá brúnum

RockMow Z1 er afkastamesta gerðin, með fjórhjóladrifi og háþróuðu fjöðrunarkerfi sem gerir vélmenninu kleift að takast á við allt að 80% halla og tryggir sléttar beygjur og sveigjanlega stjórnun, jafnvel á ójöfnu undirlagi. RockMow Z1 kortleggur svæðið með GNSS/VSLAM leiðsögn og nær af öryggi yfir allt að 5.000 m² á dag. Kraftmikið, stöðugt og sjálfsöruggt vélmenni við allar aðstæður.

Sláttuvélmennin frá Roborock

✔ kortleggja garðinn af nákvæmni
✔ slá nákvæma skurði við brúnir án þess að fara alveg upp að jaðrinum
✔ greina og forðast hindranir
✔ er hægt að tímastilla

Aukahlutir