Heimilistæki | HT.is

Hvernig skara Philips framúr í hótelsjónvörpum?

Sérsniðin uppsetning | Innbyggð tækni | Sérhæfðar lausnir

Philips var efst á listanum árið 2024 sem vinsælasta vörumerki Vestur-Evrópu fyrir hótelsjónvörp.

Nú þegar eru yfir 750.000 hótelherbergi útbúin Philips MediaSuite sjónvörpum, svo það er ljóst að bæði hótelrekstraraðilar og gestir geta treyst á Philips. Við tókum saman sex ástæður þess að Philips hótelsjónvörp fá frábæra endurgjöf frá viðskiptavinum.

1. Fjölhæf innleiðing

Í heimi þar sem ferðalög verða sífellt algengari finnst sjaldan tími til þess að staldra við og endurskoða hvernig hótelsjónvörp tengjast hinu stóra hótelkerfi. Fjölhæf innleiðing skiptir þar sköpum.

Philips hótelsjónvörp eru útbúin Android stýrikerfi og hönnuð með allar þarfir hótelsins í huga.

  • Sérsniðin sjónvarpskerfi eftir einstökum kröfum um innviði hótelsins
  • Þráðlausir vörpunarmöguleikar sem hafa ekki áhrif á WiFi tenginguna
  • Innbyggð tækni sem veitir hótelgestum fyrsta flokks afþreyingarmöguleika

2. Stuðningur innan handar

Heimilistæki hefur verið þjónustu og dreifingaraðili á Philips hótelsjónvörpum á Íslandi í marga áratugi. Mikill fjöldi hótela af öllum stærðum og gerðum hafa valið Philips hótelsjónvörp aftur og aftur.

Sértæk þekking er því innan handar með stuðningi við sölu, lausnir og tæknilegar þarfir.

Sveigjanleiki og fjölbreyttir stærðarmöguleikar eru lykilinn að því að mæta þörfum viðskiptavina þar sem rétta lausnin finnst með samstarfi milli Heimilistækja, Philips og viðskiptavina.

3. Sannreynd tækni | Notendavænt Android stýrikerfi

Sífellt verður mikilvægara að veita gestum greiðari aðgang að því afþreyingarefni sem það hefur vanist heima hjá sér. Sjónvarp sem uppfyllir þessar kröfur en tengist auk þess auðveldlega við hótelkerfið, sem jafnframt er einfalt og notendavænt í notkun. Slíkt er algjör leikbreytir.

Sannreynd tækni sem er hönnuð til þess að vinna fyrir þig er lykilatriði til þess að einfalda uppsetningu og hámarka frammistöðu fyrir gesti. Philips hótelsjónvörpin eru hönnuð með Android stýrikerfi, vel þekktu og margrómuðu kerfi sem gestir þekkja.

Auk þess:

  • Örugg og uppfæranleg nýsköpunartækni, sem veitir rekstraraðilum jafnt sem gestum hugarró.
  • Google Cast og Play Store aðgangur, sem veitir hótelgestum aðgang að þeim streymisveitum og afþreyingarefni sem þeir óska eftir í gegnum þeirra eigin aðgangsreikninga.
  • Fjölbreyttar innleiðingaraðferðir, valkostir og stoðkerfi sem eru hönnuð til þess að aðlagast þörfunum á þínu hóteli.
  • Notendavæn og snjöll tækni sem einfalt er að þjónusta og nýtur trausts frá stærstu hótelum heims.

4. Netflix – klárt til innritunar | Google Play store | Einstök samþætting milli stöðva

Aðgangur að streymisveitum er atriði sem ferðalangar leyfa gjarnan að hafa áhrif á hótelvalið. Philips MediaSuite gerir gestum kleift að tengjast þeim þjónustum og forritum sem þeir kjósa helst og nota eins og venjulega.

Hvort sem er fyrir áskriftarleiðir eins og Android TV+, Disney+, Netflix, Spotify, Youtube eða til þess að streyma eigin efni, allt saman er þetta aðgengilegt í allt að Ultra HD 4K myndgæðum.

5. Innleitt og tilbúið til notkunar | Engin áskrift | Kvikmyndir, tónlist og fleira

Með Philips MediaSuite er Google Cast nú þegar uppsett í sjónvarpstækinu, tilbúið til notkunar fyrir hótelgesti um leið og þeir koma inn á herbergið.

Enn fremur er áskrift óþörf með Google Cast, og kostar þar af leiðandi ekki neitt. Hótelgestir geta því haldið áfram að horfa frá því sem fyrr var horfið; á þætti, kvikmyndir og fleira, í allt að 4K gæðum á stærri skjám.

6. Orkusparandi | Lengri endingartími | Fjarstýrt

Með Philips MediaSuite er skilvirknin innbyggð. Hvort sem þú leitast eftir því að lækka rafmagnsreikning hótelsins eða spara orku og tíma starfsfólksins sem sér um að þjónusta skjáina á ykkar vegum.

Enn fremur er kerfið hannað með sex megin kjörorð Philips í huga – minnkum; endurnýtum; gerum við; endurnýjum; endurvinnum; endursköpum. Philips hótelsjónvörpin endast og nýtast lengur.