Verslanir
Opnar kl 10:00
Opnar kl 10:00
Philips Airfryer 3000 með tvöfaldri körfu gerir þér kleift að samstilla eldunartíma í tveimur aðskildum körfum með einum smelli, svo maturinn í hvorri körfu verði tilbúinn á sama tíma. Þú nýtur þess að bera fram nýeldaðan og heitan mat á einfaldan máta.
Eldaðu máltíðir fyrir alla fjölskylduna í stóru körfunni og notaðu minni körfuna fyrir meðlæti, eftirrétti og máltíðir fyrir einn.
Notaðu snertiskjáinn til þess að velja nákvæmar hitastillingar og eldunartíma fyrir ferskar franskar, kjúkling, kjöt, grænmeti, fisk, kökur og upphitun matvæla. Útrýmdu ágiskunum og óvissunni!
Eldaðu heilu máltíðirnar með stórri 6L körfu (rúmar t.d. 1,5kg af kartöflum eða heilan kjúkling). Notaðu minni 3L körfuna fyrir t.d. spergil eða gulrætur!
Þú finnur HomeID appið í Google Play Store og AppStore. Þar má fletta í gegnum hundruði uppskrifta og leiðbeininga fyrir þinn Airfryer.
RapidAir tæknin kemur í veg fyrir brenndan eða hráan mat! Einstök hönnun sem hámarkar loftflæðið um matinn og jafnar hitadreifinguna, ekki aðeins umhverfis matinn heldur einnig í gegnum hann til þess að ná sem bestum árangri. Fullkomlega stökk, safarík og jafnt elduð máltíð í hvert skipti.
Með loftsteikingarvél geturðu gleymt brenndum fingrum, reykfylltu eldhúsi og steikingarfýlu. Léttur og handhægur loftsteikingarpottur klárar verkefnið án mikillar fyrirhafnar fyrir þig, meira að segja er auðvelt að þrífa hann. Í stað þess að maturinn sé steiktur í olíu notar loftsteikingarpotturinn heitt loft. Loftið dreifist fljótt um matinn og býr til stökkt yfirborð sem þú tengir venjulega við djúpsteiktan mat. Svo einfalt, svo gott og ekki síst miklu hollara.