Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Opnar kl 10:00
Opnar kl 10:00
Opnar kl 10:00
Opnar kl 10:00






Vörulýsing
Ambilight fjórhliða baklýsing með AmbiScape
Fjórhliða Ambilight-tæknin umbreytir sjónvarpsupplifuninni og lætur skjáinn
virðast stærri og dregur þig enn dýpra inn myndina. Með AmbiScape stækka áhrif
Ambilight út fyrir sjónvarpið sjálft með því að við samstilla samhæfðar
snjallperur í herberginu við efnið sem birtist á skjánum. Þegar þú hefur
upplifað Ambilight verður erfitt að hugsa sér sjónvarp án þess.
Bjartur OLED META skjár
Þökk sé háþróuðum Tandem WOLED skjá endurskapar þetta OLED+ Ambilight
sjónvarp raunveruleikann með meiri birtu og skýrleika en áður hefur þekkst.
Myndin lítur stórkostlega út frá öllum sjónarhornum með einstakri dýpt í litum
og meiri birtuskilum. Jafnvel minnstu smáatriði koma greinilega fram, hvort sem
þau eru falin í djúpum skuggum eða björtustu ljósunum. Einnig styður sjónvarpið
öll helstu HDR-snið, sem tryggir hámarks myndgæði
P5 AI myndvinnsluörgjörvi
Myndgæði þar sem smáatriðin hafa meiri dýpt, litirnir eru ótrúlega lifandi
og húðtónar náttúrulegir og raunverulegir. Gerfigreindin eykur myndgæði og
fínstillir myndina í rauntíma. Skýrari smáatriði með meiri dýpt í birtuskilum
og ríkulegri litir.Hreyfingar eru mjúkar og flæðandi á meðan skerpan helst
framúrskarandi þannig að þér líður eins og þú sért hluti af atburðarásinni.
Taktu leikjaupplifunina á næsta stig
Með HDMI 2.1, allt að 165 Hz endurnýjunartíðni er þetta Ambilight-sjónvarp
hannað til að skila framúrskarandi leikjaupplifun fyrir alla spilara. Öflugur
vélbúnaður og háþróaðir leikjaeiginleikar tryggja mýkri hreyfingar, skýrari
mynd og hraðari viðbrögð, sem getur skipt sköpum í hraðskreiðum keppnisleikjum.
Til að auka stjórnun og býður Game Bar 2.0 upp á þægilegt stjórnborð þar
sem hægt er að stilla og fínstilla leikjastillingar á einfaldan hátt meðan á
spilun stendur. Þetta gerir þér kleift að aðlaga upplifunina að þínum
leikjastíl. Sjónvarpið styður einnig tengingu við Bluetooth-leikjastýringar,
sem gerir skýjaleikjaspilun (Cloud Gaming) einfalda og aðgengilega án þess að
þörf sé á leikjatölvu. Fyrir tölvuleikjaspilara er einnig boðið upp á stuðning
við VRR (Variable Refresh Rate) í gegnum HDMI-tengingu, sem tryggir enn mýkri
og stöðugri spilun.
Dolby Atmos hljóðkerfi
Nýtt og byltingarkennt Dolby Atmos og DTS:X hljóðkerfi frá Bowers &
Wilkins er samþætt sjónvarpinu og myndar breitt og umlykjandi hljóðsvið.
Framvísandi hátalarar ásamt sérstöku miðjurásarkerfi beina kristaltærum
samræðum og nákvæmum hljóðáhrifum beint til áhorfandans. Öflugur bassahátalari
á bakhliðinni skilar djúpum, kraftmiklum og nákvæmum bassa sem gefur hverju
atriði aukið líf.
Dolby Vision 2
Nýjasta kynslóð af Dolby Vision 2 Max færir þig
nær sýn leikstjórans en nokkru sinni fyrr. Endurbætt myndvinnsla og gervigreind
sem greinir innihald hverrar senu hámarka birtu, liti og hreyfingu í rauntíma.
Útkoman er raunveruleg myndupplifun sem lyftir kvikmyndum og leikjum á nýtt
stig.
Titan OS netviðmót
Gerir þér kleift að tengjast öllum helstu streymisveitum beint úr tækinu eins
og Netflix, Amazon Prime, Disney+, Apple TV og HBO Max ásamt íslensku efni eins og
Sjónvarpi Símans
Nánari tæknilýsing
Almennar Upplýsingar
Framleiðandi
Philips
Módel númer
65OLED911
Afl
Orkuflokkur
F
Orkunotkun SDR
102 kWh/ári
Skjár
Skjástærð í tommum
65
Upplausn skjás
3840 x 2160
Hlutfall
16:9
Skjátækni sem er notuð
OLED
Endurnýjunartíðni
165 Hz
HDR geta skjá
HDR10+ / Dolby Vision 2 Max
Uppskölun
Já
Aðrir eiginleikar skjás
4 hliða ambilight / Micro Dimming Perfect / Perfect Natural Motion
Hugbúnaður
Tegund snjallsjónvarps
Titan OS
Tegund örgjörva
P5 AI Perfect Picture Engine
Apple Airplay 2
Já
Annað
eARC
Hljóð
Afl hátalara í W RMS
81
Tegund hátalara
3.1
Eiginleikar hljóðkerfis
B&W hljóðkerfi / Dolby Atmos / DTS:X hljóðkerfi
Tengimöguleikar
USB Tengi
2
Fjöldi HDMI 2.1 Tengja
4
Hljóðtengi
Optical út / Heyrnatólstengi / Tengi f Bassahátalara
Net tengi
Já
Net
Bluetooth
5.4
WiFi-Staðall
WiFi-6
Stærðir
Stærð (B x H x D)
1443 x 865 x 45 mm
Stærð með stand
1443 x 888 x 296 mm
Breidd í cm
144.3
Þyngd
21,4 Kg
Þyngd með stand
21,7 Kg
VESA festingarmöguleikar í mm
300 x 300
Litur
Svartur
Fylgihlutir
Hvað fylgir með
Fjarstýring
Annað
Annað
DVB-T2/S2/C / eARC
Orkunotkun
F
