Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opið til 18:00
Opið til 18:00
Opið til 18:00
Opið til 22:00 27. nóvember - Svartur föstudagur
Opið til 18:00






Vörulýsing
Ambilight baklýsing með AmbiScape
Ambilight-tæknin
umbreytir sjónvarpsupplifuninni og lætur skjáinn virðast stærri og dregur þig
enn dýpra inn myndina. Með AmbiScape stækka áhrif Ambilight út fyrir sjónvarpið
sjálft með því að við samstilla samhæfðar snjallperur í herberginu við efnið
sem birtist á skjánum.
Þegar þú hefur upplifað Ambilight verður erfitt að hugsa sér sjónvarp án þess.
Bjartur OLED-skjár
Náttúruleg og einstaklega raunveruleg mynd jafnvel þegar horft er á skjáinn
frá hlið. Sjónvarpið aðlagar sig sjálfkrafa að breytingum á birtu í umhverfinu,
þannig að myndgæðin haldast framúrskarandi, óháð því hvað þú ert að horfa á eða
hversu bjart eða dimmt er í herberginu.Djúpir svartir litir haldast
sannarlega svartir, en verða ekki gráleitir eins og oft getur gerst á
hefðbundnum skjám. Björtu svæðin einstakri skerpu og birtu, sem gerir það að
verkum að jafnvel fínustu smáatriði verða sýnileg. Dimmar kvikmyndasenur,
skuggasvæði í leikjum eða bjartar náttúrumyndir, þá nýtur hvert atriði sín til
fulls með mikilli dýpt, ríkulegum litum og framúrskarandi birtuskilum.Einnig
styður sjónvarpið öll helstu HDR-snið, sem tryggir hámarks myndgæði. Njóttu
kvikmynda, þáttaraða, leikja og íþrótta eins og efnið var ætlað af höfundum
þess. Útkoman er stórbrotin sjónræn upplifun með líflegum litum, auknum
smáatriðum og ótrúlegri raunveruleikatilfinningu.
P5 myndvinnsluörgjörvi
Myndgæði þar sem smáatriðin hafa meiri dýpt, litirnir eru ótrúlega lifandi
og húðtónar náttúrulegir og raunverulegir. Hreyfingar eru mjúkar og flæðandi á
meðan skerpan helst framúrskarandi þannig að þér líður eins og þú sért hluti af
atburðarásinni.
Taktu leikjaupplifunina á næsta stig
Með HDMI 2.1, allt að 165 Hz endurnýjunartíðni er þetta Ambilight-sjónvarp
hannað til að skila framúrskarandi leikjaupplifun fyrir alla spilara. Öflugur
vélbúnaður og háþróaðir leikjaeiginleikar tryggja mýkri hreyfingar, skýrari
mynd og hraðari viðbrögð, sem getur skipt sköpum í hraðskreiðum keppnisleikjum.
Til að auka stjórnun og býður Game Bar 2.0 upp á þægilegt stjórnborð þar
sem hægt er að stilla og fínstilla leikjastillingar á einfaldan hátt meðan á
spilun stendur. Þetta gerir þér kleift að aðlaga upplifunina að þínum
leikjastíl. Sjónvarpið styður einnig tengingu við Bluetooth-leikjastýringar,
sem gerir skýjaleikjaspilun (Cloud Gaming) einfalda og aðgengilega án þess að
þörf sé á leikjatölvu. Fyrir tölvuleikjaspilara er einnig boðið upp á stuðning
við VRR (Variable Refresh Rate) í gegnum HDMI-tengingu, sem tryggir enn mýkri
og stöðugri spilun.
Dolby Atmos hljóðkerfi
Samhæfni við Dolby Atmos og DTS:X færir hljóðupplifun þessa sjónvarps á
nýtt stig, óháð stærð eða gerð rýmisins. Hvort sem þú ert að horfa á nýjustu
stórmyndirnar, spila spennandi tölvuleiki eða fylgjast með stærstu
íþróttaviðburðunum, nýtur þú ótrúlega raunverulegs og umlykjandi hljóms. Hljóðáhrif
eru staðsett bæði fyrir ofan þig og allt í kringum þig, sem skapar þrívíða
hljóðupplifun. Niðurstaðan er áhrifamikil og kvikmyndaleg upplifun sem færir
afþreyinguna nær raunveruleikanum.
Dolby Vision 2
Nýjasta kynslóð af Dolby Vision 2 færir þig nær sýn leikstjórans en nokkru
sinni fyrr. Endurbætt myndvinnsla og gervigreind sem greinir innihald hverrar
senu hámarka birtu, liti og hreyfingu í rauntíma. Útkoman er raunveruleg myndupplifun
sem lyftir kvikmyndum og leikjum á nýtt stig.
Titan OS netviðmót
Gerir þér kleift að tengjast öllum helstu streymisveitum beint úr tækinu eins
og Netflix, Amazon Prime, Disney+, Apple TV og HBO Max ásamt íslensku efni eins og
Sjónvarpi Símans
Standur með snúningi
Standur gerir þér kleift að snúa sjónvarpinu eftir þörfum. Þetta veitir
aukinn sveigjanleika í staðsetningu. Auðveldar að fá ákjósanlegt sjónarhorn og
dregur úr glampa frá umhverfinu.
Nánari tæknilýsing
Almennar Upplýsingar
Framleiðandi
Philips
Módel númer
55OLED811
Afl
Orkuflokkur
G
Orkunotkun SDR
84 kWh/ári
Skjár
Skjástærð í tommum
55
Upplausn skjás
3840 x 2160
Hlutfall
16:9
Skjátækni sem er notuð
OLED
Endurnýjunartíðni
165 Hz
HDR geta skjá
HDR10+ / Dolby Vision2
Uppskölun
Já
Aðrir eiginleikar skjás
3 hliða Ambilight / Micro Dimming Pro / Perfect Natural Motion
Hugbúnaður
Tegund snjallsjónvarps
Titan OS
Tegund örgjörva
P5 AI Perfect Picture Engine
Apple Airplay 2
Já
Annað
eARC
Hljóð
Afl hátalara í W RMS
70
Tegund hátalara
2.1
Eiginleikar hljóðkerfis
Dolby Atmos / DTS:X hljóðkerfi
Tengimöguleikar
USB Tengi
2
Fjöldi HDMI 2.1 Tengja
4
Hljóðtengi
Optical út, Heyrnatólstengi
Net tengi
Já
Net
Bluetooth
5.4
WiFi-Staðall
WiFi-6
Stærðir
Stærð (B x H x D)
1225 x 701 x 40 mm
Stærð með stand
1225 x 774 x 239 mm
Breidd í cm
122.5
Þyngd
14,9 Kg
Þyngd með stand
17,6
VESA festingarmöguleikar í mm
300 x 300
Litur
Grár
Annað
Annað
DVB-T2/S2/C / eARC