Vörulýsing
Keramik panna frá Le Creuset er ómissandi í eldhúsið.
Pönnur frá Le Creuset eru ávallt framleiddar úr úrvals hráefnum.
Þetta er panna sem er gerð úr hertu áli sem tryggir betri hitaleiðni og dreyfingu.
Pannan er með góðri stálplötu í botnunum , þannig að hún virkar á allar hellur,þ.m.t. span.
Húðunin er Keramik sem er án allra plastefna (PFAS), og er viðloðunarfrí .
Keramik húðunin er slitsterk og auðveld í notkun og allri umgengni,
þetta er panna sem þarf litla olíu.
Keramik pönnurnar er auðvelt að þrífa.
Mælt er með því að láta pönnuna kólna vel(varist að setja kalt vatn á heita pönnuna ),
Pannan er svo þvegin upp úr mildu sápuvatni .(mælum með handþvotti, en hún má fara í uppþvottavél).
Keramik pönnurnar þola allt að 280°c hita í bakaraofni, (en 220°c ef notað er gler pönnulok frá Le Creuset.
Handfangið á pönnunum er einstaklega þægilegt í hendi og hitna ekki.
28cm panna.
það er 10 ára ábyrgð á Keramik línunni.
Nánari tæknilýsing