Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Opnar kl 10:00






Vörulýsing
JBL Signature Sound með Hi-Res Audio
10 mm hátalarar með JBL Signature Sound skila skýrum smáatriðum, djúpum
bassa og náttúrulegu hljómi. Hi-Res Audio Wireless dregur fram öll blæbrigði í
tónlist, hlaðvörpum og símtölum, á meðan JBL Spatial Sound breytir venjulegu
steríóhljóði í náttúrulega þrívíddarhlustun.
Smart Charging Case™ fyrir þægilegri notkun
Endurhannaða Smart Charging Case™ hleðsluboxið virkar einnig sem stjórnstöð
fyrir heyrnartólin. Á skjánum má stilla hljóðstyrk, skipta um lög, stjórna
hávaðadeyfingu og umhverfishljóði auk þess að sérsníða hljóðstillingar, allt án
þess að nota síma eða app.
True Adaptive Noise Cancelling 2.0 með rauntímastillingu
Fylgist stöðugt með umhverfinu og dregur úr óæskilegum hávaða. Með JBL
Headphones appinu er hægt að stjórna hversu mikið af umhverfishljóði kemst í
gegn. Ambient Sound er stillanlegt og Smart Talk lækkar sjálfkrafa í
tónlistinni þegar þú byrjar að tala, þannig að auðvelt er að eiga stutt samtöl
án þess að ýta á pásu.
Perfect Calls 2.0
Sex hljóðnemar draga úr umhverfishávaða svo röddin þín heyrist skýrt og
náttúrulega í símtölum. Einnig er hægt að aðlaga símtalsstillingar eftir
aðstæðum.
Allt að 48 klukkustunda rafhlöðuending og þráðlaus hleðsla
Heyrnartólin bjóða upp á allt að 12 klukkustunda spilun og hleðsluboxið
veitir allt að 36 klukkustundir til viðbótar. Tíu mínútna hraðhleðsla með USB-C
gefur allt að 4 klukkustunda hlustun og einnig er stuðningur við Qi þráðlausa
hleðslu.
Ný kynslóð Bluetooth® með LE Audio
Njóttu meiri hljóðgæða með minni orkunotkun. LE Audio opnar möguleika á
nýjum tengingum, þar á meðal Auracast™ útsendingum sem hægt er að nálgast í
gegnum JBL Headphones appið.
IP55 vatns- og rykvörn
Vatns- og rykvörn samkvæmt IP55 staðli gerir heyrnartólin vel til þess
fallin að fylgja þér í æfingar, dagleg ferðalög og útivist.
Personi-Fi 3.0
Sérsníddu hljóðupplifunina að þinni heyrn og óskum. Personi-Fi 3.0 notar
gagnvirkar stillingar til að skapa sem besta hljóðupplifun.
JBL Headphones app
Með JBL Headphones appinu geturðu sérsniðið hávaðadeyfingu (ANC) að lögun eyrnanna, breytt stillingum fyrir umhverfishljóð ,snertistýringar
og hljóðstillingar. Einnig er hægt að sérsníða bendingar
og staðsetja heyrnartólin ef þau glatast.
Google Finder og Audio Switch
Finndu heyrnartólin fljótt með hjálp Google Finder og skiptu auðveldlega á
milli síma, spjaldtölvu og fartölvu án þess að rjúfa hlustunina.
Nánari tæknilýsing
Almennar Upplýsingar
Flokkur
Tappar
Heyrnatól
Hátalarastærð
12mm
Næmni
101 dB
Tíðnisvið
20 Hz – 40 kHz
Viðnám
32
Eiginleikar
Active noise cancelling
Já
Ferðahleðsla
Já
Hleðslutími
2 klst
Veðurvörn
Já - IP55
Google Assistant Raddstýring
Já
Hljóðnemi
6
Fylgihlutir
Hleðslubox / USB-C hleðslusnúra
Rafhlaða
Ending
10 klst með ANC, 12 klst án ANC
Net
Bluetooth
5.3
Stærðir
Litur
Svartur
Þyngd
9 gr
Annað
Tengimöguleikar heyrnartóla
Bluetooth
Með hljóðvörn
Já
Gerð fyrir
Tónlist