Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Opnar kl 10:00






Vörulýsing
Legendary JBL Sound með AI Sound Boost
JBL Xtreme 5 er búinn uppfærðu hljóðkerfi sem samanstendur af kraftmiklum
bassahátalara (woofer), tveimur hátíðnihátölurum (tweeters) og AI Sound Boost til
að hámarka hljóðupplifunina. Niðurstaðan er djúpur og áhrifamikill bassi, skýr
söngur og nákvæm smáatriði í tónlistinni, allt án bjögunar jafnvel við háan
hljóðstyrk. Hvort sem þú ert að hlusta á rólega tónlist eða halda veislu skilar
JBL Xtreme 5 kraftmiklu JBL Pro hljómi sem fyllir rýmið af lífi.
Allt að 28 klukkustunda rafhlöðuending
JBL Xtreme 5 býður upp á allt að 24 klukkustunda samfellda spilun á einni
hleðslu. Með því að virkja Playtime Boost geturðu bætt við allt að 4
klukkustundum til viðbótar og fengið samtals allt að 28 klukkustunda
spilunartíma. Einnig er hægt að hlaða snjallsímann, heyrnartólin eða önnur
USB-tæki þökk sé innbyggðum hleðslubanka.
Svo bætir 10 mínútna hraðhleðsla við allt að 2 klukkustundum af
spilunartíma
Axlaról
Öflugt hljóð, frjálsar hendur. JBL Xtreme 5 kemur með þægilegri axlaról sem
gerir auðvelt að bera hátalarann með sér hvert sem er. Sérhannaðir fljótandi
krókar halda hátalaranum í jafnvægi á meðan þú ert á ferðinni.
IP68 Vatns-, ryk- og fallvörn
JBL Xtreme 5 er hannaður fyrir ævintýri og erfiðar aðstæður. Hvort sem um
er að ræða vatnsslettur við sundlaugina, sand á ströndinni eða óvænt högg og
byltur. Með IP68-vottun fyrir vatns- og rykþol og einstaklega sterkri og
endingargóðri byggingu er JBL Xtreme 5 tilbúinn fyrir nánast allar aðstæður.
Hann þolir álagið sem fylgir útivist, ferðalögum án þess að gefa eftir.
Umhverfislýsing
Innbyggð LED-lýsing á JBL Xtreme 5 fylgir taktinum í tónlistinni og skapar
lifandi og skemmtilegt andrúmsloft og breytist í takt við tónlistina og
aðlagast mismunandi stemningu og aðstæðum.
Lýsingin þjónar einnig hagnýtum tilgangi með því að sýna stöðu rafhlöðu,
aflrofa, Bluetooth-tengingar og Auracast™-tengingar með skýrum sjónrænum
vísbendingum.
Smart EQ Mode
Smart EQ Mode notar gervigreind til að greina hljóðefnið sem þú ert að
hlusta á og stillir tónjafnarann sjálfkrafa í rauntíma. Þetta tryggir að
hlaðvörp og talmál hljómi skýrt og náttúrulega á meðan tónlist fær aukinn
kraft, dýpt og nákvæmni.
Þú þarft því ekki að stilla hljóðið handvirkt því hátalarinn sér sjálfur um að
hámarka upplifunina fyrir hvert hljóðefni.
Lossless Audio
Tengdu JBL Xtreme 5 með USB-C tengingu og njóttu tónlistar í sinni tærustu
mynd. Hátalarinn styður Lossless Audio, sem gerir þér kleift að streyma hljóði
í mjög háum gæðum þar sem hvert smáatriði skilar sér.
Auracast™
Með Auracast™ geturðu tengt tvo samhæfa hátalara saman fyrir magnað stereóhljóð
eða tengt marga JBL hátalara í einu þráðlausu kerfi.
Þannig geturðu búið til öflugan hljóðvegg sem fyllir stór rými, útisvæði eða
heilu veislurnar af kraftmiklum hljómi.
JBL Portable app
Gerðu hátalarann að þínum eigin. Með JBL Portable appinu geturðu sérstillt hljóminn
með 7 banda tónjafnara (7-band EQ), valið mismunandi lýsingu, stjórnað
tengingum og fengið nýjustu hugbúnaðaruppfærslur.
Appið gerir þér kleift að aðlaga JBL Xtreme 5 nákvæmlega að þínum
hlustunarvenjum.
Nánari tæknilýsing
Hátalarar
Gerð
2x 2.75" bassahátalarar og 2x 0.75" tweeterar
Fjöldi hátalara
4
Power output (RMS)
130W RMS
Tíðnisvið
40Hz-20kHz
Net
Bluetooth
6
Tengimöguleikar
Fjöldi USB-C tengja
1
Eiginleikar
Auracast
Já
Ferðahleðsla
Já
Partytime Boost
Já
Veðurvörn
Já - IP68
JBL Portable app
Já
Hleðslutími
3,5 klst
Fylgihlutir
Axlaról
Rafhlaða
Ending
Allt að 28 klst
Stærðir
Litur
Svartur
Undirlitur
Svartur
Þyngd
2,9 kg
Stærð (B x H x D)
346 x 165 x 155 mm
Annað
Annað
Straumbreytir fylgir ekki