Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Opnar kl 10:00






Vörulýsing
JBL Legendary
Sound
JBL Legendary Sound hljómur
veitir fyllri og kraftmeiri hlustunarupplifun, með dýpri bassa sem fæst fyrir
tilstilli endurbættrar hljóðhönnunar. AI Sound Boost greinir tónlistina í
rauntíma og tryggir að hljómurinn haldist hreinn og laus við truflun, jafnvel
þegar hækkað er vel í tækinu.
Heillandi ljósasýning í takt við tónlistina
Gerðu hvert lag að upplifun fyrir öll skilningarvitin með ljósasýningu sem nær
360 gráður í kringum hátalarann og
dansar í takt við tónlistina. Fjölbreytt úrval af líflegum partý-stillingum og rólegri umhverfislýsingu leikur um yfirborð hátalarans og innbyggða upplýsta handfangið, sem skapar dýpt og lætur ljósið teygja sig út fyrir sjálfan hátalarann.
Ljós sem kviknar við snertingu
Þegar engin tónlist er í gangi þarftu bara að banka tvisvar á Pulse 6 til að
kveikja á mjúkri og notalegri lýsingu þegar þig vantar smá birtu. Þetta er
þægileg leið til að rata í myrkrinu án þess að þurfa að grípa í símann eða
kveikja á sterkara ljósi. Stilltu birtustigið beint með hljóðstyrkstökkunum,
eða fínstilltu birtu og litahitastig í
JBL One appinu.
Allt að 12 klukkustunda spilunartími
Allt að 12 klukkustunda spilunartími tryggir að hljómur og ljós haldist í
gangi, hvort sem um er að ræða afslappaða stund að degi til eða rólega
kvöldstund.
Spilaðu áfram, í sól eða rigningu
IP68-vörn gegn vatni og ryki þýðir að vökvi, skvettur, sandur eða skyndileg
rigning stöðva ekki fjörið. Hvert sem þú ferð, þá heldur Pulse 6 áfram að
skína.
Tengdu saman og spilaðu með Auracast™
Er von á mörgum gestum? Með Auracast™ geturðu tengt Pulse 6 við aðra
JBL-hátalara sem styðja Auracast™ til að auka hljóðstyrk og útbreiðslu. Paraðu
tvo hátalara í steríó fyrir breiðari hljóm, eða tengdu fleiri eftir því sem
partýið stækkar. Þú getur einnig samstillt ljósasýninguna við JBL
PartyLight-einingar til að láta ljósið ná enn lengra.
Hreinn hljómur og hljómgæði (lossless)
Tengdu tækið og njóttu lagalistanna þinna í sinni hreinustu mynd. JBL Pulse 6 styður
(lossless) hljóðflutning í gegnum USB-C,
sem tryggir hágæða hljóm þar sem hvert smáatriði skilar sér
Stjórnaðu upplifuninni með JBL One appinu
Sæktu JBL One appið til að njóta Pulse 6 til fulls. Veldu á milli líflegra
veislustillinga og rólegri stemninga, eða paraðu hljóð sem skapa ákveðna
stemningu við samsvarandi ljósáhrif og sameinaðu hljóð og ljós á nýjan hátt.
Appið gerir þér einnig kleift að fínstilla hljóminn með einföldum jafnara (EQ),
tengja saman hátalara með Auracast™ og virkja „Sunset Mode“ – svo þú getir
mótað stundina nákvæmlega eins og þú vilt.
Nánari tæknilýsing
Hátalarar
Power output (RMS)
40W RMS
Tíðnisvið
58Hz-20kHz
Net
Bluetooth
6
Tengimöguleikar
Fjöldi USB-C tengja
1
Eiginleikar
Auracast
Já
Ferðahleðsla
Nei
Partýljós
Já - 360°
Veðurvörn
Já - IP68
JBL Portable app
Já
Hleðslutími
4,5 klst
Rafhlaða
Ending
Allt að 12 klst
Málrýmd rafhlöðu (mAh)
Lithium 4722mAh
Stærðir
Þyngd
1,49
Stærð (B x H x D)
132 x 264 x 106 mm
Annað
Annað
USB-C snúra og hleðslukubbur fylgja ekki með