Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Lokað: 17. júní - þjóðhátíðardagur Íslendinga
Lokað: 17. júní - þjóðhátíðardagur Íslendinga






Vörulýsing
eufy Permanent Outdoor Lights S4 er fjölhæf og öflug lausn fyrir lýsingu utandyra sem sameinar daglega lýsingu, hátíðarlýsingu og öryggislýsingu í einu kerfi. Ljósakeðjan er 30 metra löng með 72 LED ljósum og er hönnuð til að vera klippanleg og stækkanleg, þannig að hún aðlagast auðveldlega mismunandi þökum og uppsetningum.
Með þreföldu LED kerfi sem sameinar RGB, heitt hvítt og kalt hvítt ljós færðu breitt litasvið frá 1500K upp í 9000K, auk skærari og líflegri lýsingar. Snjall hreyfiskynjun með radar tryggir að ljósin kveikni og fylgi hreyfingu, með möguleika á viðvörunarlýsingu til að bæta öryggi við heimilið.
Í snjallforriti má velja úr allt að 120 forstillingum fyrir mismunandi stemningar og tilefni, þar á meðal hátíðir eins og jól, hrekkjkavöku o.fl. Kerfið styður einnig tónlistarsamstillingu þar sem ljósin fylgja takti tónlistar, sem skapar lifandi og skemmtilega upplifun.
Ljósakerfið er samhæft við helstu snjallheimiliskerfi eins og Apple Home, Google Home og Alexa í gegnum Matter-stuðning og getur tengst eufy öryggisbúnaði til að virkja lýsingu við hreyfingu. Með IP67 veðurvörn og endingargóðri hönnun er þetta áreiðanleg lausn fyrir allt árið, óháð veðri.
Nánari tæknilýsing
Almennar Upplýsingar
Módel númer
T8L04421
Strikamerki vöru
194644248451
Pera/ur
Gerð peru
LED
Perustæði
Borði
Litastillanleg
Já
Dimmanleg
Já
Lágmarks litahiti í Kelvin
1500
Hámarks litahiti í Kelvin
9000
RGB litastillanleg
Já
Hámarksljósstyrkur í lumen
0
Ending í klukkustundum
25000
Samhæfni
Bluetooth
Nei
Zigbee
Nei
Virkar með Google Home
Já
Virkar með Amazon Alexa
Já
Önnur snjallforrit
Apple Home