Electrolux Þvottavél 9kg 1400sn | HT.is

9 kg þvottavél með 1400 sn/mín vinduhraða með skammtara.

UniversalDose - Skömmtun á þvottaefni sem bæði sparar tíma og fyrirhöfn, auk þess að gefa besta mögulegan árangur í þvotti. UniversalDose er hannað til að taka allar gerðir af þvottaefni, venjulegt þvottaduft, vökva og einnig þvottahylki (PODS).

SensiCare sem aðlagar lengd þvottakerfis svo þú notir minna rafmagn og vatn.

Gufukerfi sem er sérlega hentugt til að fjarlægja vonda lykt og slétta krumpaðar flíkur. Fjarlægir meira en 99,99% af sýklum og veirum úr fatnaðinum.

TimeManager gefur þér mikla möguleika á að velja lengd hvers þvottakerfis.

14 mismunandi þvottakerfi, m.a. 20 mín hraðkerfi fyrir allt að 3 kg af fatnaði.

Hljóðlátur kolalaus Eco Inverter mótor - Meiri afköst og lengri ending.