Dyson Sléttujárn Corrale | HT.is

Dyson Corrale sléttujárnið stuðlar að mjúku og silkikenndu hári.
Sléttujárnið er þráðlaust og rafhlaðan endist í allt að 30 mínútur í senn.
Plöturnar í sléttujárninu eru sveigjanlegar sem lætur þær safna hárinu betur saman og stuðlar að glansandi sléttu hári með notkun minni hita, sem er betra fyrir hárið.
Með innbyggðum hitamæli sem kannar hitastig platnanna 100 sinnum á sekúndu er gengið úr skugga um það að hitastigið haldist stöðugt og fari ekki upp fyrir þann hita sem þú valdir.
OLED skjár á sléttujárninu sýnir hversu mikið er eftir af rafhlöðunni, hvaða hitastig er still á og hvort sléttujárnið sé í hleðslu eða ekki.
Sveigð ytri hlið sléttujárnsins er sérstaklega hönnuð til þess að hjálpa þér að móta hárið í krullur eða bylgjur.
Hægt er að velja um þrjú mismunandi hitastig, 165°C, 185°C eða 210°C, allt eftir þív hvað hendar þinni hárgerð og sídd.
Með sléttujárninu fylgja bæði hitaþolinn geymslupoki og hleðslustöð. Svo er hleðslusnúran sérstaklega hönnuð þannig að hún getur snúist 360° eftir þörfum.
Sléttujárnið slekkur sjálfkrafa á sér ef það er ekki notað í 10 mínútur.
Spennustillir og flugstilling gera þér kleift að ferðast með sléttujárnið án vandræða.