Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Opnar kl 10:00

Vörulýsing
1400 lítra tvöfaldur iðnaðarkæliskápur frá Beko sem hentar vel þar sem þarf mikið geymslurými í einni öflugri einingu. Skápurinn er smíðaður úr AISI 304 ryðfríu stáli að innan og utan og er ætlaður fyrir krefjandi atvinnuumhverfi. Hitastiginu er stýrt rafrænt og birt á stafrænum skjá. Sjálfvirk afþíðing, sjálfvirkt uppgufunarkerfi fyrir vatn og viftukæling hjálpa til við að halda rekstrinum stöðugum og einföldum í daglegri notkun. Tvær læsanlegar hurðir auðvelda aðgengi og draga úr óþarfa hitatapi þegar unnið er hratt. Inni í skápnum eru grindur og 23 mögulegar stöður fyrir hillur sem gefa góðan sveigjanleika í skipulagi.
Beko professional eru sérpöntunarvörur, afhendingartími er ca. 4-8 vikur.