Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Opnar kl 10:00






Vörulýsing
130 lítra lyfjakæliskápur frá Beko sem er sérstaklega hannaður fyrir geymslu lyfja, bóluefna, sýna og annars viðkvæms innihalds sem þarf nákvæms og stöðugt hitastig. Skápurinn heldur hitastigi á bilinu +2 til +8°C og er hannaður til að halda hitasveiflum í lágmarki, með hámarks hitamun upp á +2,9°C innan skápsins. Nákvæm rafeindastýring, afkastamikill uppgufunarbúnaður og þróuð loftkæling vinna saman að jafnara hitastigi um allt innra rýmið.
Þrír innbyggðir hitanemar fylgjast stöðugt með hitastiginu og senda upplýsingar á stafrænan skjá. Ef hitastig breytist, hurð er skilin eftir opin eða rafmagn fer af virkjast bæði hljóð- og ljósviðvörun. Viðvaranir eru skráðar ásamt dagsetningu, lengd og hitabreytingum og geymast í minni stýringarinnar. Það er einmitt þetta sem aðgreinir skápinn frá almennum kæliskáp, hann er hannaður til að vakta, skrá og verja viðkvæmt innihald með stöðugri hitastýringu og virku viðvörunarkerfi.
Skápurinn er einnig með LED lýsingu og sjálflokandi hurð sem dregur úr hættu á að hurð standi óvart opin. Hann hentar vel í rannsóknastofur, apótek, heilsugæslur, lækningastofur og önnur umhverfi þar sem gerðar eru kröfur um örugga geymslu lyfja.
Beko professional eru sérpöntunarvörur, afhendingartími er ca. 4-8 vikur.