Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Opnar kl 10:00

Vörulýsing
700 lítra iðnaðarfrystiskápur frá Beko sem er smíðaður úr AISI 304 ryðfríu stáli að innan og utan og hentar vel þar sem þarf sterka og endingargóða lausn. Frystisviðið er frá -18 til -20°C og hitastiginu er stýrt með rafrænni hitastýringu og stafrænum skjá. Skápurinn er með sjálfvirkri afþíðingu og sjálfvirku uppgufunarkerfi fyrir vatn sem einfaldar daglega notkun. Viftukæling hjálpar til við að halda jafnara hitastigi inni í skápnum. Inni í skápnum eru þrjár grindur og 23 mögulegar stöður fyrir hillur. Hurðin er læsanleg og hurðaopnun er stillanleg.
Beko professional eru sérpöntunarvörur, afhendingartími er ca. 4-8 vikur.