Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Lokað: 14. maí - Uppstigningardagur
Lokað: 14. maí - Uppstigningardagur
AFHENT VIÐ BÍLHURÐ - VERÐ FRÁ 4.995
Áttu góða að? Þá gæti hentað þér að fá tækið afhent við bílhurð. Bílstjórinn okkar sér um að skutla tækinu til þín og út úr vörubílnum, þú sérð um að koma tækinu inn til þín. Þetta er ódýrari kostur sem hentar vel fyrir þau sem eiga góða að sem geta aðstoðað við að bera tækið en hafa ekki aðgang að stærri bíl.
Þarftu meiri aðstoð? Gegn aðeins hærra gjaldi getur bílstjórinn aðstoðað við að koma tækinu inn til þín og inn í notkunarrými, svo lengi sem aðgengi er gott. Athugið að bílstjórinn okkar er einn á ferð og því nauðsynlegt að einhver sé á staðnum sem getur borið tækið með honum inn.
Er gamla tækið fyrir? Bílstjórinn okkar getur tekið gamla og skilað því á Sorpu fyrir þig gegn vægu gjaldi. Það eina sem þú þarft að gera er að tæma og aftengja tækið svo það sé tilbúið fyrir flutninga.
Við keyrum út alla virka daga á milli 14-19 og á laugardögum milli 12-16. Ef pantað er fyrir hádegi er oftast hægt að fá afhent samdægurs en á álagstímum getur afhending tekið lengri tíma. Ekki er hægt að óska eftir ákveðnum tíma innan aksturslotunnar.
Ef bílstjóri metur aðgengi sem ábótavant (t.d. snjór eða mikil hálka á tröppum/stétt eða húsgögn og innréttingar í gangvegi inni á heimili) getur hann tekið vöruna til baka og frestað afhendingartíma þar til aðgengi hefur lagast, á kostnað kaupanda. Vertu því viss um að aðgengið hjá þér sé gott þegar þú átt von á okkur.
Bílstjóri sér ekki um að tengja tæki eða uppsetningu á þeim fyrir notkun. Bílstjóri sér ekki heldur um að aftengja eldri tæki sem á að fara með í endurvinnslu.
Sé eitthvað óljóst eða þurfir þú aðstoð er best að hringja í síma 569-1500 eða senda tölvupóst á sala@ht.is.